14.4.2007 | 02:18
MYNDBROT VIKUNNAR (Ég kann lag sem tekur fólk á taugum)
Þessa mynd tók ???????? ?. af Pétri R. og þótti honum mjög leiðinlegt að fá ekki að hafa hana lengur. Eins og þið sjáið ekki á myndinni þá er lagið sem kemst hæst á vansældarlistanum þessa vikuna, "Ég kann lag sem tekur fólk á taugum". Einnig kynnum við lík(legt) til vinsælda "Ég á hníf og mig langar til að not´ann". En í þessa uppskrift þarf einmitt tvö skyr. Þessu næst fór Kiddi í bíó, og var myndin ágæt að hans sögn.
Á myndinni sem er hér(i) fyrir neðan, er (P)étur í sólbaði að sötra íste. Heyrðu! Bíddu... hvert var ég kominn? OOOOO... ég er villtur
HHHHHHHHJJJJJJJJJÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁLLLLLLLLLLP!!!!
14.4.2007 | 02:06
Nýjung á Klingenberggötu
Hér er ég til gamans að birta gömul myndbrot vikunnar svokölluð, sem sumir, alveg lokal, reyndar, kannst mjög vel við. Þetta eru myndir með athugasemdum sem fest voru uppi vikulega í KFUMogK á Akureyri fyrir mörgum árum. Var fyrir norðan á dögunum og fann þetta efni sem ég ætla að leyfa mér að setja hér af og til.
Þó svo að þetta heiti ,,Myndbrot vikunnar", þá er ekki víst að þau séu ,,vikunnar" hér á blogginu. Þau bara þekkjast í þröngum hópi sem ,,Myndbrot vikunnar" og verða í flokki sem heitir einmitt ,,MYNDBROT VIKUNNAR".
Skemmtið ykkur vel.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2007 | 01:57
MYNDBROT VIKUNNAR (Fatal Snowhanger)
Eins og í öllum góðum, eða flestum, ja.. ööö.. sumum, eeee... nokkrum góðum myndum endaði þetta allt saman vel (það er að segja á töflunni hjá myndbrotinu). Jibbííí!!
Þökkum áheyrnina, lifið heil eða í pörtum eftir smekk(buxum). Einnig má bæta smá grænum lit út í (sko vistvænn brandari).
14.4.2007 | 01:32
MYNDBROT VIKUNNAR (Friðrik Friðriksson)
Snorri litli (h)álfur var eftir þetta sendur á (h)álftanes eða var það hálft annes, eða var það háalvarlegt nes eða kannski hálft Hannes, nei það var Kópasker. Hóst hóst og hananú ! ! !
Myndbrot vikunnar | Breytt s.d. kl. 01:40 | Slóð | Facebook
6.3.2007 | 22:02
Nýtt myndaalbúm
Setti inn nokkrar myndir frá öskudeginum í vinnunni mynni.
Sjá albúm hér að neðan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2007 | 12:37
Flensa ofl.
Hér er flensa hjá mæðgunum mínum. Stelpan er reyndar að braggast. Hún er búin að liggja (eins langt eins og það nær með Rebekku) síðan á öskudaginn. Þá kom símtalið sem maður vill ekki fá frá leikskólanum.
Svo lagðist Anna á Föstudaginn og er enn að drepast úr beinverkjum o.þ.h.
Ég aftur á móti er þernan sem sinni heimilisfólkinu eftir bestu getu og stend og sit eftir því sem mér er sagt. Lifi í kvennaríki.
Ég er ekki veikur (Í JESÚ NAFNI) og hef það að öðru leiti fínt.
Svo reyndar var ég að fá nýtt húsnæði fyrir hljóðverið mitt. Með fullri virðingu fyrir Samhjálp og öllu sem þar hefur verið gert fyrir mig, þá var þetta ekki að ganga. Salurinn of oft upptekinn til að ég kæmist í Hljóðverið mitt þegar mér hentar. Allavega fer ég sáttur og hlakka til að byrja að vinna í Hljóðverinu mínu á nýjum stað, strax og flensan gengur yfir hér heima.
Svo hvet ég ykkur til að skoða hljóðverssíðuna mína. Var að breyta henni dáldið mikið. Þ'u getur skoðað allt um Hljóðafl hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.1.2007 | 22:37
Fullt fullt af hugmyndum...

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.12.2006 | 21:46
Jólakveðja
Óska ykkur báðum... nei, nei, ykkur öllum sem nenntuð að lesa þessar fáu bloggfærslur hér á árinu, gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þakka ykkur fyrir að kíkka við hér og þó að ekkert hafi verið um að vera, voru samt einhverjir sem litu við.
Hafið það gott um jólin og njótið hátíðarinnar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.12.2006 | 00:36
Oslo Gospel Choir
Ég má til með að tjá gleði mína yfir þessum frábæra norska kór.
Smelltum okkur á tónleika í Grafarvogskirkju í kvöld (16. des) kl 21:00 og áttum alveg von á góðum tónleikum.... en, þetta voru alveg magnaðir tónleikar og við (hjónin ofl.) vorum virkilega hrifin. Tore Aas, stjórnandi kórsins hefur ekkert verið að bora í nefið á sér við útsetningar og lagasmíðar. Hann er einfaldlega snillingur og mjög frumlegur og skemmtilegur. Svo sem ekkert í fyrsta skiptið sem ég heyri í kórnum, á nokkra diska með þeim og eitt myndband. Reyndar á ég ekkert síðan 1997 með þessum kór og tók ég eftir því að það eru ekki margir eftir af upprunalegum félögum í kórnum, en samt nær Tore að halda sjarma kórsins og gömlu laganna. Ef ég hefði bara heyrt í kórnum (ekki séð hann), hefði ég ekki áttað mig á því hvað það eru fáir eftir af upprunalegum söngvurum í kórnum. Hann semsagt nær að halda kórnum góðum sama hver er að syngja með.
Einnig eru í kórnum tvær ungar dömur, sem mér skilst að séu tvíburar eða eitthvað, allavega mjög líkar, ef ekki eins og svona líka vel gefnar tónlist. Önnur spilar listavel á gítar og syngur og hin spilar á slagverk og syngur, og svo útsetja þær sjálfar og semja. Við fengum að heyra þrjú lög flutt af þeim og kórinn fékk frí á meðan. Ég týndi mér alveg á meðan þær fluttu sín lög. Alveg æðislegar. Ég hálf datt úr sambandi við umheiminn á meðan.
Bandið var líka fínt og vel spilandi. Tóku allir sóló, sumir oftar en tvisvar.
Semsagt alveg magnaðir tónleikar.
Og ekki skemmir fyrir að þau vilja öll lyfta upp nafni Drottins í gegnum tónlistina.
Bendi hér með á heimasíðu kórsins: http://www.ogc.no/
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2006 | 18:22
Meri snjó, meiri snjó...
Þetta er náttúrulega klisja dauðans þegar jólin nálgast en ég verð samt að fá að nota hana núna. Versluðum í gær nýja snjóþotu handa Rebekku. Hún var svo spennt að ég varð að setja teppi undir þotuna í gærkvöldi og draga stelpuna um á gólfinu hér heima. Svo byrtist ég í dag á leikskólanum til að sækja Rebekku og þegar hún sá þotuna gat hún ekki beðið eftir að komast út að renna. Hún hefur ekki verið svona fljót að koma sér í fötin síðan ég fór að sækja hana á leikskólann. Svo var svo gaman hjá henni á þotunni að ég verð bara að biðja um meiri snjó svo Rebekka skemmti sér á þotunni. ÞAÐ ER SVO GAMAN AÐ VERA PABBI ÞEGAR BARNIÐ SKEMMTIR SÉR MEÐ MANNI.
Reyndar þegar ég hugsa um vinnuna mína... þá kannski skipti eg um skoðun. Það er ekki eins gaman að draga tunnur í snjó ef hann er eitthvað að ráði. Þá kannski er rétt að hafa bænina þannig...
Góði Guð!
Viltu láta koma snjóstorm hér heima í garðinum, en ekki þar sem ég þarf að draga ruslatunnur í vinnunni... amen.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)