Færsluflokkur: Myndbrot vikunnar

MYNDBROT VIKUNNAR. (drullu-kall)

  Þessa mynd tók Jóhann (lík) Þ. af Bjarna G. og þótti honum mjög leiðinlegt að fá ekki að hafa hana lengur. Eins og allir vita er Bjarni for-maður (drullu-kall) okkar, aðal officinale-inn (blómgast í maí-ágúst). Hrói tók stóran bita af eplinu, enda var hann mjög þyrstur.

Ljóð sekúndubrotabrotsins:

          Hamingjusamur hlýðinn
          Með næma heyrn
          Gjafmyldur
          Risavaxin tröllaukinn gríðarlegur
          Eftirtektarsamur nærgætinn
          En þar með var ekki öll sagan sögð.
          ENDIR

Inngangur:

          Til hægri.

Drullu-kall


MYNDBROT VIKUNNAR (Björningi Prestley)

 Þessa mynd tók Gústi B. (punktur) af Birni J. (punktur), (komma) og þótti honum mjög leiðinnnlegt að fá ekki að hafa hana lengur. (punktur)  (tvö bil) Eins og sjá má en heyrum sem betur fer ekki, (komma)  er Björningi Prestley í "syngjandi" (tvenns konar gæsalappir þær fyrri opna en þær seinni loka) sveiflu og er greinilega búinn að setja Carlsbro á hausinn. (punktur) (tvö bil) Þá bauð Hrói littli dvergnum heim í hrísluna sína til að horfa á kaffi. (punktur)

ÞRJÚ - NÚLL fyrir Gulla svínabónda! (upphrópunarmerki)

          FRÓÐLEIKUR DAGSINS : (tvípunktur) Knurri er venjulega 25-50 cm, (komma) mest 75 cm, (komma) en þó aldrei meira en meter. (punktur)       

Ljóð sekúndubrotsins: (tvípunktur)

                   Skoða sig! Um í húsi
                   Hvað sem því líður
                   Hvernig sem er
                   Húsbóndi hunds eða kattar
                   Setja slagbrand fyrir reglur
                   Tómatur
                             (höf. (punktur) ókenndur)

Heimildaskrá : (tvípunktur)
          Fiskar og fiskveiðar
          Sænsk - Íslensk orðabók

 

Björningi Prestley

MYNDBROT VIKUNNAR (Bara sagði Sara)

Þessa mynd tók Ágúst B. af Ágústi B. og S(n)öru H. og þótti þeim mjög leiðinlegt að fá ekki að hafa hana lengur.

(Innskot frá ritstjóra: Við ákváðum að skrifa Söru með enni (n) en ekki hnakka). Kvakk Kvakk! Sagði litli fíllinn og hló við.

Smáljóð klukkutímans:

Bara sagði Sara
Af því bara sagði Sara og fór að stara
en þó ekki á Ingvar(a)
Sem lét sér nægja að svara
Ara
Stattu ekki eins og þvara
Klara
Því ég þarf að spara
mína peningara
Mannabekkinn vara
Vér höldum að þetta hljóti að vera hreinasta tjara
svo að við ætlum bara
að fara
                            (höf. Óþekk(t)ur.)

Næsti dagskrárliður er : Tvær - 1 úr tungunum (2-1=ein),

góða nótt.

Bara sagði Sara

MYNDBROT VIKUNNAR (Myndbrotabrot hversdagsleikans)

Þessa mynd tók Ágúst B. af ... öö einhverjum sem ekki vill sjást á myndinni,  sem einmitt þótti það mjög leiðinlegt að fá ekki að hafa hana lengur.

Mynbrot vikunnar að þessu sinni er breytt brot frá venjulegum brotum og verður því bara brot af broti úr myndbrotabroti hversdagsleikans.

Það skal tekið fram að Sanitas Mix styrkti ekki þessa útsendingu.

P.S: Til hamingju með (K)jólin(n).

Myndbrotabrot hversdagsleikans


MYNDBROT VIKUNNAR (Í miðbænum)

 Þessa mynd tók Katolla H. af Þóru B. og þótti henni mjög leiðinlegt að fá ekki að hafa hana (eða hænu (jafnrétti)) lengur. Þarna sjáið þið Þóru á Akureyri, á hundraðtuttuguogfimmmmm ára afmælinu (hennar), nánar tiltekið nítjánhundruðátttttatíuogsjö.

(Viðlag:)
:,:       Í miðbænum.
          Að kvöldi til.
          Fyrir frama(n) brókabúð blóðnasar. :.:

(Viðurlög:)
:.:       Take it ÍS(Í) (easy (I see (Ice in))) :.:(234234x)

(Niðurlag:)
Niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiður.

(Í öðru lagi:)
Tíminn líðu hratt á gerfihnatta öld.

O.K.

Í miðbænum

MYNDBROT VIKUNNAR (Ég kann lag sem tekur fólk á taugum)

Þessa mynd tók ???????? ?. af Pétri R. og þótti honum mjög leiðinlegt að fá ekki að hafa hana lengur. Eins og þið sjáið ekki á myndinni þá er lagið sem kemst hæst á vansældarlistanum þessa vikuna, "Ég kann lag sem tekur fólk á taugum". Einnig kynnum við lík(legt) til vinsælda "Ég á hníf og mig langar til að not´ann". En í þessa uppskrift þarf einmitt tvö skyr. Þessu næst fór Kiddi í bíó, og var myndin ágæt að hans sögn.

Á myndinni sem er hér(i) fyrir neðan, er (P)étur í sólbaði að sötra íste. Heyrðu! Bíddu... hvert var ég kominn? OOOOO... ég er villtur

HHHHHHHHJJJJJJJJJÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁLLLLLLLLLLP!!!!

Ég kann lag sem...

MYNDBROT VIKUNNAR (Fatal Snowhanger)

 Þessa mynd tók Snorri K. af Hönnu B. og þótti henni mjög leiðinlegt að fá ekki að hafa hana lengur. Mynd þessi hefur allstaðar fengið mjög góða dóma, en hún heitir á frumumálinu Fata(l) Snowhanger. Örvæntingarsvipurinn leynir sér ekki, þar sem hún rétt nær að krækja fötunni í hjarnið á því augnabliki sem hún er alveg að fljúga fram af hengjunni.

Eins og í öllum góðum, eða flestum, ja.. ööö.. sumum, eeee... nokkrum góðum myndum endaði þetta allt saman vel (það er að segja á töflunni hjá myndbrotinu). Jibbííí!!

Þökkum áheyrnina, lifið heil eða í pörtum eftir smekk(buxum). Einnig má bæta smá grænum lit út í (sko vistvænn brandari).

Fatal Snowhanger

MYNDBROT VIKUNNAR (Friðrik Friðriksson)

  Nú erum við byrjaðir aftur (ekki brothættir). Þessa mynd tók Gústi hinn frábæri af myndinni sem var tekin af Friðriki Friðrikssyni.  Athugið að við hliðina á myndinni er Jói Æðislegi.  (Flækjast) Fyrir (before) á myndinni er tískusýning, þar sem Gunna Steina er að kynna nýju línuna frá Anti-amor. Sýningardaman Birna Inga er í rauðum krebinkjól með talíu og svissnesku gerfiskrauti úr blöndu af kopar og stálull (sokkarnir eru frá Johnson og Víum).

Snorri litli (h)álfur var eftir þetta sendur á (h)álftanes eða var það hálft annes, eða var það háalvarlegt nes eða kannski hálft Hannes, nei það var Kópasker. Hóst hóst og hananú ! ! !

Friðrik Friðriksson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband