26.4.2011 | 21:20
Er ég kalla á Jesú
Ég er bara - ein mannvera
Ósköp einföld - ein og sér
Aldrei gengið - á vatni fengið
Aldrei hamið - vindinn hef
Stundum ég læðist á braut
svo ég sjái ekki heiminn
líkt og barn sem í myrkri oft er hrætt.
En er ég kalla á Jesú allt er mér mögulegt
Og ég mun fljúga upp á vængjum sem örn
Er ég kalla á Jesú fjöllin þau færa sig
því Hann mun jörðina´og himinn færa úr stað fyrir mig
La-la-la La-la-la La-la-la
Þreytti bróðir - brotna dóttir
Þú sem ert að syrgja - ert ekki ein(n)
Kannski þreyttur og sár er þú horfir á heiminn
og sú von sem þú áttir farin er...
...En er þú kallar, Jesús - Allt er þér mögulegt
Og þú munt fljúga upp á vængjum sem örn
Er þú kallar Jesús - Fjöllin þau færa sig
Því Hann mun jörðina´ og himinn færa úr stað fyrir þig
Leita Hans að morgni
Leita Hans að degi
Leita á kvöldin Hann er þar
Ef hjarta þitt er brotið
Og þú ert niðurdreginn
Mundu hvað hann sagði
Hann er þar, Allsstaðar
En er ég kalla á Jesú - Allt er mér mögulegt
Og ég mun fljúga upp á vængjum sem örn
Er ég kalla á Jesú - Fjöllin þau færa sig
Því Hann mun jörðina´og himinn færa úr stað fyrir mig
La-la-la La-la-la La-la-la
("Call On Jesus": © 2001Nicole C Mullen - Ísl. texti: Ágúst Böðvarsson)
Meginflokkur: Textarnir mínir | Aukaflokkur: Trúmál | Breytt s.d. kl. 21:31 | Facebook
Athugasemdir
Ertu nokkuð 5 ára?
En er ég kalla á Batman - Allt er mér mögulegt
Og ég mun fljúga upp á vængjum sem örn
Er ég kalla á Batman - Fjöllin þau færa sig
Því Hann mun jörðina´og himinn færa úr stað fyrir mig
doctore (IP-tala skráð) 28.4.2011 kl. 10:47
Bein þýðing.
Ágúst Böðvarsson, 29.4.2011 kl. 13:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.