5.9.2007 | 21:34
Nú er ég hættur...
Nú ætla ég að hætta að lifa. Það vill enginn borga mér millur fyrir réttinn á minni ævisögu, og er ég nú talsvert eldri en Hamilton... OK, kannski hef ég ekki afrekað neitt sérstakt...
Jú, það er kannski gaman að lesa um fólk sem stendur sig vel. Mér finnst strákurinn bara hafa komið mjög á óvart í formúlunni. En samt finnst mér heldur snemmt að rita ævisögu um mann sem er rétt túmlega tvítugur... eða er ég ósanngjarn að segja það?
Borga tvær milljónir dollara fyrir rétt á sögu Hamiltons | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Mikið er ég sammála þér! Ég er næstum tvisvar sinnum eldri og enginn vill borga mér svo mikið sem 2 kr...
Áddni, 6.9.2007 kl. 08:06
Formúlan... sitjið þið í alvörunni við sjónvarpið og horfið á umferð eins og ekkert sé sjálfsagðara?
Ingvar Valgeirsson, 7.9.2007 kl. 13:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.