2.1.2009 | 00:57
Að krossinum vil ég koma Kristur
Að krossinum vil ég koma Kristur
Og játa þér afbrot mín
Af þyngslum þeim er ég orðinn þyrstur
Ó, Drottinn ég þarfnast þín
Ég iðrast og ég þrái að
Þú endurnýir mig
Og líf mitt verði aftur það
Sem vitnað geti um þig
Ó, mig þyrstir eftir þér
Því að beinin tærast í mér
Kom og lækna sérhvert sár
Og Drottinn þerra öll mín tár
Ágúst Böðvarsson 2005 n©b - Allur réttur áskilinn
Flokkur: Textarnir mínir | Breytt 3.1.2009 kl. 13:07 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.