Ofhlaðinn eða...

Ég velti því fyrir mér hvort að ég sé ofhlaðinn verkefnum... ekki það að fólk sé að hlaða á mig verkefnum, heldur ég sjálfur.

Það er margt spennandi um að vera og erfitt að segja nei.

1. Ég er eignmaður og faðir (dæmi mæðgurnar mig, hvernig gengur) 24-7

2. Ég er "Sorphirðir" að atvinnu 6:00-15:00 á daginn

3. Ég er að spila í Samhjálp á fimmtudögum 18:00-22:00

4. Ég er með útvarpsþátt Á Lindinni á þriðjudögum  15:30-18:00

5. Ég er að vinna í upptökum hjá Samhjálp, sem samanstanda af útgáfu á tveimur geislaplötum með öllu sem því tilheyrir

5. Ég er að syngja í jólakór Fíladelfíu sem æfir á þriðjudögum 18:00-21:00 í nóvember + öðruhvoru utan þess.

Maður reynir bara að velja og hafna utan þessarar dagskrár.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Valdís Guðmundsdóttir

Ok. Mér finnst þú hafa alveg ágætlega nóg að gera en finnst við svo sem ekkert  vanræktar ;o) En ég hef smá áhyggjur þegar þú ert nýsofnaður þegar þú átt að vakna til vinnu!

Anna Valdís Guðmundsdóttir, 24.11.2008 kl. 18:57

2 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Það er svona með þessa kreppu - ekkert að gera hjá mönnum!

Ingvar Valgeirsson, 25.11.2008 kl. 10:30

3 Smámynd: Gunnlaugur Halldór Halldórsson

Þú ert flottur maður af  mínu skapi og svo er gott að vinna Guðs verk

Guð blessi þig og góða konu

Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 27.11.2008 kl. 04:18

4 Smámynd: Bryndís Böðvarsdóttir

Nú hlýtur hver að skilja aflverju við systkinin hittumst svona sjaldan. Síðan er ég í skóla og vinnu með heimili og fjölskyldu. Við skrifumst þá bara á eða fáum, eins og oft vill verða, fréttir af hvoru öðru í gegnum mömmu...

Passaðu bara heilsuna. Það getur verið gaman að vinna fyrir Guð (sérstaklega ef þjónustan felur í sér lofgjörð) en mikilvægast er auðvitað að hlúa að fjölskyldunni og ekki má gleyma sjálfum sér. 

Bið að heilsa ykkur öllum! 

Bryndís Böðvarsdóttir, 28.11.2008 kl. 22:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband