31.8.2008 | 11:27
Æ, nei.... Pabbi! Lirfan er týnd...
Lirfan hvarf áðan og ég hugsaði með mér, ,,jæja... hún hefur sennilega notað tækifærið og látið sig hverfa. Ég sneri herberginu hennar Rebekku við til að reyna að finna ,,týnda soninn" en allt kom fyrir ekki. Lirfan fannst ekki.
Svo kom ég fram í stofu og var litið í stofugluggann. Þá var hún þar á gluggakistunni. Ég velti fyrir mér langferðinni sem hún hafði lagt í en svo var eðlileg skýring á því. Börnin eru svo fyndin. Þau mega ekki vera að því að fylgjast með hvað þau gera við hlutina. Rebekka hafði semsagt skroppið með ,,lirfustrákinn" fram og gleymdi honum þar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.8.2008 | 08:40
Ég held´ann hangi þurrrrrr í dag... og ,,lirfustrákur"
Við ætlum að plokka nokkur ber í dag og vonum að veðurspáin sé nokkuð ólygin.
Það er geinilega komið haust, miðað við síðustu rigningardaga. Var úti í gær með Rebekku og Grétu, vinkonu hennar og vorum við komin upp fyrir Ingunnarskóla þegar þessi svaka rigning buldi á okkur og enginn í regnklæðum. Við áttum fótum fjör að launa og stelpurnar þurftu að skipta um föt sökum þess að þær voru á skermalausum hjólum og gengu gusurnar upp um þær að aftan þegar þær hjóluðu heim. Á meðan við biðum eftir því að Gréta skipti um föt og kæmi að borða hjá okkur, fann Rebekka þessa svaka lirfu og er semsagt gengin í móðuhlutverk yfir ,,lirfustráknum" sínum. Hún fullyrti í gær að mamma hans og pabbi hefðu leyft honum að gista hjá henni í nótt. Hún breyddi svo yfir hann í dúkkurúminu og svæfði hann. En allavega er lirfan enn á lífi en samt eitthvað máttlaus, hummm! Ég hálf vorkenni lirfunni... Ég spái henni ekki langlífi, en hvað getur maður svo sem sagt. Kannski sannar Rebekka að hún geti átt gæludýr
Ég er kominn í 3ja vikna frí og ætla að reyna að nota tímann upp í bústað að vinna. Reyni kannski að taka með mér eitthvað af stúdíóinu til að vinna eitthvað upp af trassaskapnum... þ.e. ef það koma lægðir í vinnunni þar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.8.2008 | 15:47
Vodafone... ...tónlist í símann...
Ég er ekki mjög hrifinn af þessu...
"Ein af ástæðum þess að þú velur Vodafone, er tónlist í símann"
Þar sem ég á tölvu, I-pod og síma til að hlusta á tónlist í. Ef ég ætti bara síma til þess arna, þá væri þetta sölutrikk svona la, la...
Þessu er hins vegar þannig háttað að ég fór að ná mér í nokkur lög á "Vodafone live!" síðunni og, frábært, ég get þá keypt tónlistina svona. En svo þegar ég afritaði lögin yfir í tölvuna, sem eru á mp4 formi, þá skildi tölvan ekki skráargerðina og ég gat því ekki smellt þessu í Ipodinn heldur. Síminn minn heldur lögunum í gíslingu sem læstum skrám sem ekki er hægt að gera neitt við nema hlusta í símanum. Ég eyddi peningum í að kaupa þessi lög og þar sem að ég á Ipod hefði ég viljað getað hlustað á þau í honum.
Ég hélt, og held að það sé rétt, að ef ég kaupi lag, megi ég gera við það sem ég vil, svo lengi sem það er bara fyrir mig. Ég má afrita það eins oft og ég vil ef ég geri afritin bara fyrir mig en ekki aðra.
Eða hvað...?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.8.2008 | 17:21
Nú er ég á krossgötum...
Er ósáttur við ákveðna hluti sem eru að gerast í kringum mig og mun sennilega kveðja ákveðinn vettvang á næstunni...
Ég hef tekið ákvörðun um að breytingar eru í vændum. Það er samt best að hafa sem fæst orð um það að sinni. Kemur í ljós bráðum...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.8.2008 | 15:44
Mögnuð færsla hjá Yngva...
Mig langar til að benda ykkur á að lesa hjá Yngva Rafni vini mínum þennan pistil um ást Guðs föður á okkur...
Takk Yngvi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.8.2008 | 21:06
Smá innlegg í einkavæðinguna...
Ég lenti á eftir strætó í umferðinni í dag sem væri ekki í frásögu færandi ef ekki væri fyrir þennan eldgamla og illa hirta vagn. Ég veit fyrir víst að þessi vagn er á vegum einkarekins rútufyrirtækis sem tók að sér að aka tiltekna leið vegna útboðs. Það var mjög auðvelt að sjá, þar sem það var frekar blautt á, að það dropaði úr honum olía á malbikið. Strætó bs. er með alla vagnana sína það nýja og betur viðhaldna og myndi ekki láta þennan gamla vagn vera á götunni svona illa farinn.
Svo er verið að leita leiða til að bjóða út eitthvað af hverfum til sorphreinsunar. Ég veit um ákveðið fyrirtæki sem myndi bjóða í sorphirðuna. Þetta fyrirtæki er með bíla á götum borgarinnar og víðar sem eru í misgóðu ásigkomulagi. Sumir þeirra leka olíunni eins og áðurnefndur strætisvagn.
Er það til bóta að bjóða út rekstur sem borgin ber ábyrgð á ef þetta er málið...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.7.2008 | 22:24
Hundaskítur í sandkassa...
Var staddur á Akureyri um síðastliðna helgi og meðal annars skrapp ég út með dóttur mína 4ra ára. Hana langaði svo ógurlega að skoða einhverja "kóngulóarrólu" á leiksvæði rétt hjá þar sem við vorum stödd. Svo þegar leiðinn sagði til sín í þessari annars fínu rólu, þá lá leiðin í sandkassann á staðnum og hún byrjaði að gramsa í sandinum og ég eitthvað líka til að vera með í leiknum. Þá rak ég augun í eitthvað skrítið og þegar betur var að gáð, þá var ég u.þ.b. að velta við hundaskít, og ekki bara einum, heldur nokkrum, í sandkassanum.
Hvað er í gangi hjá fólki? Er fólk að sleppa hundunum sínum lausum út án eftirlits?, eða leyfir fólk hundunum sínum að drulla í sandkassa sem ætlaður er börnum til leiks? Ég bara spyr. ÓGEÐ!!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.7.2008 | 23:49
Paul Simon...
Var að detta inn úr dyrunum eftir dásamlega tónleika með Paul Simon og félögum. Ýkt mega kúl töff band sem hann er með núna. Sumir í bandinu hafa spilað með honum oft áður og bassaleikarinn ekkert prump. Svalur gaur.
Þarna hljómuðu flest öll bestu lögin hans og var maður bara nokk sáttur utan, það vantaði eitt lag. "Bridge over troubled water". Skil ekki hvað manninum gekk til að spila ekki það lag fyrir okkur. Hann hlýtur að hafa gelymt því...?
Jæja, en allavega er ég samt sáttur... "Boy in the bubble", "Graceland", "The boxer", "The Sound of silence", "You can call me All", "Diamonds on the souls of her shoes" ofl.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.6.2008 | 22:05
Er Guð góður? ööö... já...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.5.2008 | 12:30
Nýja húsið fyrir Mozaik
Þetta er alveg magnað hús og ég hlakka til þegar við byrjum með samkomur þar, þ.e. þegar búið er að dempa hljóð ofl. Aðeins of mikið fyrir kirkjukóra. Við hins vegar erum ekki með neinn kirkjukór. Erum frekar soldið rokkuð og verðum þar af leiðandi að dempa dáltið svo rafmagnaðir tónar lofgjörðarbandsins skili sér vel af sviðinu.
Annars er ég í letikasti heima að blogga. Á að vera núna á leiðinni í sorpu með drasl úr geymslunni og velti jafnvel fyrir mér hvort Íslendingar ættu að hætta þátttöku í Júrópólitíkinni sem ég horfði á í gær. Veit að nú þegar eru nokkur lönd hætt og fleiri íhuga það sama... ekki að ég hafi eitthvað um það að segja, en þetta bara svona kemur í hugann... af hverju ekki að mótmæla því hvernig skrípaleikur stigagjafar Júróvision er háttar og hætta nú þegar trukkabílstjórarnir (hinir, ekki ég, þó að ég sé ruslabílstjóri) hafa gefið mótmælatóninn. Eða, verður ísland alltaf sama undirgefna litla ríkið í norðurhafi...?
bara pæling...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)