3G netið...

Núna er ég kominn í 3G áskrift á netið hjá Símanum í viðbót við Vodafone dótið allt saman. Það virðist ódýrara að vera með 3G net hjá símanum heldur en Vodafone. En samt erum við með allt annað, símana og internetið (adsl) hjá Vodafone. En, með 3G getur maður farið á netið í tölvunni  hvar sem er... þ.e. þar sem 3G svæði Símans nær yfir, held líka upp í bústaðCool

Nú er ég einnig að horfa á Nýtt á Skjá einum. Eureka. Undarlegur þáttur. Margt undarlegt á seyði þar. Veit ekki hvort að ég nenni að fylgjast með þeim.

Svo eru spennandi hlutir að fara að gerast hjá Mozaik. Nýtt hús og flutningur í vændum... Fáum að skoða húsið á morgunn. Hlakka til.

Svo verð ég á Lindinni á morgunn eins og alltaf á þriðjudögum frá 15:30 til 18:00 Það er hægt að hlusta á Lindina beint hér

 


Nýja kirkjan okkar heitir Mozaik...

Já, Mozaik Hvítasunnukirkja.

Mig langaði bara rétt til að benda á að ég er að bæta henni við í tenglasafnið. Þú getur kíkkað á heimasíðu kirkjunnar hér á http://www.mozaik.is/

 


Bogi Pétursson er látinn

Ég kynntist Boga allt of seint en þann stutta tíma sem ég þekkti hann, sá ég að hann var einstakur maður og mikil bænahetja og tilbúinn að leggja mikið á sig til þess eins að sem flestir kynntust Kristi.

Mér var það heiður, þau fáu sumur sem ég starfaði við Ástjörn, að fá að stilla fyrir hann mandolínið. Hann treysti mér svo vel fyrir því. Svo áttum við líka margar góðar spjallstundir saman við önnur tækifæri. Ég fann að honum þótti vænt um mig og raunar hryggir það mig nú, er ég hugsa til baka, að ég skyldi ekki vera duglegri að heimsækja hann þegar ég skrapp norður.

Ég sakna Boga og er búinn að gera það síðan ég hitti hann síðast. Það er allt of langt síðan.

Blessuð sé minning hans í Jesú nafni og Guð gefi Margréti og öllum hans nánustu styrk núna.

 

 

 


Ég ítreka...

Laga srætókerfið og gera það aðgengilegra og skilvirkara, þá getur fólk farið að hugsa um að selja bílana sína og nota almenningssamgöngurnar. Þá neyðast olíufélögin til að lækka eldsneytisverðið vegna minnkanndi sölu.

Svp ættum við að íhuga að ferðast meira um á reiðhjólum...Wink

Var að koma frá köben, sem reyndar er frekar flöt og menn myndu vinna til verðlauna ef þeir fyndu brekku þar, þar er mikil reiðhjólamenning og flestir sem ferðast þannig eru nettir í laginu...


mbl.is Bensínverð væri 180 krónur ef bensíngjaldi hefði ekki verið breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meira frá köben...

DSC06774 
Jazzband á nyhavn. Takið eftir að trommarinn er með tösku í stað bassatrommu sem gaf mátulega sjabbí sánd fyrir tilefnið

Endilega fylgist áfram með okkur hér á bloggi  Önnu.


Hvílíkur missir...

Ég verð að segja það að hann Danny setti sinn keim á tónlist Springsteen. Nú veit maður ekki hvort að lögin hjá Springsteen verði söm þegar E street bandið spilar þau hér eftir. Ég held að veröldin hafi misst mjög sérstakan tónlistarmann.

Ég fékk nett sjokk er ég las þessa frétt


mbl.is Hljómborðsleikari The E Street Band látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað var ég að blogga um?

Rétt áður en ég rakst á þessa frétt...
mbl.is Fjölmenni á íbúafundi um mislæg gatnamót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Almenningssamgöngur...

Hér í Köben og ég veit að í Osló virka þær, en heima í Reykjavík finnst mér þær ekki eins þjálar. Þegar Köben og Osló eru miklu stærri og flóknari borgir en Reykjavík, af hverju er ekki hægt að fá þjálla strætókerfi sem virkar betur á svo litlu svæði?

Hér í Köben dettur manni allt í einu í hug að taka strætó og þá gerir maður það, af því að maður þarf ekki að bíða nema örfáar mínútur. En í Reykjavík myndi biðin sennilega vera 20-30 mín.

Kannski eru síðustu breytingar á strætókerfi höfuðborgarsvæðisins til hins betra, en samt virðist maður þurfa að bíða heil ósköp og ferðast of lengi jafnvel góðan hálftíma eða klukkutíma. Ég held að það væri hægt að laga þetta með fjölgun ferða. Ráðamenn þurfa að einbeita sér kannski betur að þessu.

Ef hægt væri lokka fólk til að taka strætó þá myndi mengun á svæðinu minnka og slit á götunum. Umferðin myndi minnka og allir kæmust leiðar sinnar fljótt og örugglega og líka þeir sem nauðsynlega þurfa að vera á bíl. Götur borgarinnar myndu bera umferðina betur, ekki væri þörf á miklum og dýrum framkvæmdum, minna væri um hraðakstur, slysatíðni myndi minnka,  eldsneytisverð myndi lækka vegna minnkandi sölu og margt mætti tína til enn.

Þarf að hafa fleiri orð um kostina við betra samgöngukerfi.

Hvar eru mennirnir sem hönnuðu kerfin fyrir Köben og Osló? Veit einhver símann hjá þeim? Wink

Endilega fylgist áfram með okkur hér á bloggi  Önnu.


Anna bloggar...

Kíkkið á fréttir af okkur í Köben hér


Þá er það Kóngsins Köben...

Ég og Anna Valdís smelltum okkur til Kaupmannahafnar, svona aðeins til að kíkka við hjá henni Margréti Þórhildi. Hún hefur það fínt og biður að heilsa öllum... nei, djók...LoL

Erum að ákveða hvort okkar kemur til með að uppfæra bloggið sitt reglulega með fréttum af okkur. Fylgist með...


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband